LIGHT TRAVELS FASTER THAN SOUND... THIS IS WHY SOME PEOPLE APPEAR BRIGHT UNTIL YOU HEAR THEM SPEAK.

27.08.2007 16:57:48 / konný

bloggi blogg....

Úff vá hvað ég er ekki að nenna þessu bloggi lengur..... veit ekki einu sinni hvort að það sé einhver að skoða þetta lengur þar sem svo virðist sem það sé einhver gúrkutíð í commentum síðustu færslna !!!! :S hmmm.....

En allavega ágætt að frétta bara og svoleiðis. Erum búnar að vera fyrir norðan mæðgurnar núna í 2 vikur og vorum bara að koma í bæinn aftur í gær !!!! Rakel er alltaf jafn yndisleg og góð. Orðin 4 mánaða   ---- VILJIÐI PÆLA----   vá hvað þetta er fljótt að líða 8| Einhver smá pirringur í henni þessa dagana og hún læsir gómnum í ALLT sem hún nær í greyið, hehe :D Ætli hún fái tönnslur snemma eins og mamma sín ;)

Æ nenni ekki að skrifa meir.... ætla að reyna að henda mér í sturtu á meðan skvís sefur aðeins....

kannski Later ;)

Konný

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:51:11 / konný

hey hey

.... Long time no "write" segi ég nú bara 8| ussss er sko ekki að standa mig með þessa blogg síðu mína !!! Það er víst nóg annað að hugsa um þessa dagana ;) Maður er bara í mömmó alla daga og ekki get ég nú kvartað neitt undan þessum GULLMOLA sem ég fékk því hún er nú meiri engillinn þessi elska :D Sefur allar nætur, heyrist ekki í henni á daginn, brosir, hjalar og er svo dugleg í alla staði :o ég bara gæti ekki verið heppnari !!!!!

Hún er einmitt 6 vikna í dag og ég fer með hana í skoðun á fimmtudaginn þar sem hún verður mæld og vigtuð og svona og mig hlakkar ekkert smá mikið til :haha:

Annars er eiginlega bara mest lítið að frétta annað en að maður svífur bara ennþá á bleiku skýi yfir mömmu hlutverkinu og svona..... er búin að vera svaka dugleg við að hanga EKKI heima hjá mér á daginn. Greyið Rakel er dröslað með mér út um allar trissur :lol: hehehe..... ÉG BARA MEIKA EKKI AÐ HANGA HEIMA !!! úffff sem betur fer er komið sumar og þá er að minnsta kosti hægt að fara út að labba með vagninn !

Ef þið eruð í sumarfríi og vantar félagsskap then you know where to find me ;) LOL

kv. Konný og litli hnoðrinn

 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 23:29:42 / konný

Sætasta prinsessan :D

Jámm loksins er hún komin litla mýslan mín :haha:

Hún kom í heiminn 1.maí og var 17 merkur og 53.5 cm ;) Fæðingin endaði í keisara eftir mikil átök og þurftum við að vera á spítalanum fram á laugardag. Allt hefur hins vegar gengið eins og smurt síðan við komum heim og ég vona bara að það eigi eftir að haldast þannig bara :D Við erum búin að nefna hana og fékk hún nafnið Rakel Lea sem er alveg útí bláin... skírnin verður síðan bara við gott tækifæri einhverntíma í júní eða júlí ;)

En jæja ætla að hafa þetta bara stutt í þetta skiptið.... þarf að fara að huga að litlum hungruðum munni sem kallar á mig innan úr herbergi, hehe :lol:

click to view full size  

kv. Konný og Rakel Lea (viku gömul í dag) :o


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 18:08:27 / konný

Jæja LOKSINS.....

..... allt að gerast :haha:

Búin að missa vatnið og verð lögð inn á Hreiðrið klukkan 20:00 í kvöld. Fór uppeftir áðan en fékk svo að fara aðeins heim aftur... ætla að fá mér eitthvað gott að borða og svona ;) (gott að vera vel undirbúin fyrir átökin) og bíða eftir harðari verkjum !!!

megið senda mér hríðarstrauma og ég skrifa aftur þegar ég er komin heim :haha:

kv. Konný "aaalveg að verða mamma" jeiiii :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 11:48:12 / konný

Gjörsamlega....

.... EKKERT AÐ GERAST !!!

40 vikurnar búnar og 2 dagar ofan á það og jámmm það er semsagt allt með kyrrum kjörum enn sem komið er !!!

Er búin að vera með aukna samdrætti síðustu daga en þeir eru alveg verkjalausir og ekkert svakalega reglulegir svosem. Ég persónulega held að það muni sko ekkert gerast fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi :| og ég hef það frekar á tilfinningunni að hún verði maí skvís en ekki apríl skvís ;) hmmm.... kemur allt í ljós innan fárra daga :o

Annars bara allt við það sama og svosem ekkert nýtt að frétta því ég á mér í rauninni ekkert líf þessa dagana, heheh er bara heima að gera ekki neitt og þar sem flestir eru að vinna allan daginn þá er ég að mestu leiti ein að dúlla mér eitthvað bara :) Er nú reyndar komin með grænar bólur af því að hanga heima þannig að það er spurning um að fara að reyna að gera eitthvað þessa síðustu daga.... labba í smáralindinni eða kringlunni eða eitthvað (ekki mikið annað hægt að gera en það) :$ 

Læt ykkur svo bara vita þegar prinsessan er fædd..... ætli það verði ekki bara í næsta bloggi !!! :haha:

Bið að heylsa í bili og þið megið alveg senda mér smá hríðarstrauma í huganum ;)

 

click to view full size 


 kv. Konný og KÚLAN :o

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 15:37:04 / konný

~~ PÁSKAR ~~

og...... "daddara daaaa" 16 dagar eftir !!! :haha: jeiiii

Verð nú að segja að ég er orðin ansi þreytt sko !!! Þið trúið því ekki hvað mig hlakkar til að geta sofið heila nótt án þess að vakna svona 10 sinnum til að fara á klóið, fá mér að drekka eða bara sitja og glápa út í loftið... nóbb that´s not me :$ og OMG hvað mig hlakkar til að geta legið á maganum aftur :o hehe

Fór í sykurþolspróf um daginn og það kom bara glimrandi vel út og ekki neina sykursýki að finna hjá mér :) ég auðvitað fagnaði þeim tíðindum með því að fara og kaupa mér eitt stykki Nóa páskaegg nr.4 sem ég svo er að gæða mér á í þessum töluðu orðum ;) mmmmm...

hmmm... annars voða lítið að frétta bara. Júúú, Gullý vinkona á afmæli í dag og Telma frænka átti afmæli í gær ;) TIL HAMINGJU GIRLS

Ég er hætt að vinna sem er bara mjög ljúft :D get ekki annað sagt... er bara að dingla mér á daginn og klára svona smotterí sem ég á eftir að gera (sem er nú eiginlega ekki neitt) þannig að ef þið eruð í fríi og vantar félagsskap þá er ég ávalt til í hvað sem er ;) og ef ekkert verður farið að gerast eftir 1-2 vikur þá má væntanlega finna mig á labbinu í Smáralindinni, borðandi á austur indíafélaginu eða þrammandi upp og niður tröppurnar í Hallgrímskirkju :klikk: ykkur er velkomið að join-a, hehehehe  

Kv. hin óþolinmóða og þreytta, verðandi mamma :$ 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 18:15:35 / konný

WOW... rúmlega 5 vikur eftir !!!!!!!!!!!!

jebb it´s happening people !!! Nú eru bara nokkrar vikur í litlu músina mína :haha: vá skrítið að hugsa til þess :|

Fór í sónar um daginn og "litla" prinsessan var orðin HEILAR 12 MERKUR takk fyrir pent :o Ég spurði ljósuna í geðshræringu hvort að ég mætti virkilega búast við 18-19 marka barni og hún svaraði bara "já já" eins og ekkert væri eðlilegra og ég fann svitan spretta fram á bakinu á mér 8| Krossa nú bara putta OG TÆR og bið til guðs um að hún verði nú kannski ekki alveg svo þung en æææ... það verður bara að hafa það ef svo verður. Svo lengi sem hún er heilbrigð þá er ég í skýjunum ;)

Held nú samt að það sé nú ekkert svakalega langt í þetta hjá mér (ég spái svona 3-4 vikum) því ég er sko alveg gjörsamlega að springa (veit ekki hvort ég get orðið eitthvað mikið stærri) heheh og svo er ég líka farin að fá alveg miklu meiri samdrætti og svona. Fer svo í eitthvað sykurþolspróf í þar næstu viku til að athuga hvort ég sé nokkuð með meðgöngusykursýki :$ oohhh vona nú að svo sé nú ekki...

Annars voða lítið annað að frétta þessa dagana :) ég er enn að vinna hálfan daginn en hugsa að ég hætti eftir næstu viku og taki því bara rólega enda orðin VERULEGA þung á mér ;) híhí það verður fínt að geta farið út að labba í sumar og svona og komið sér í ágætis form aftur :D

Læt fylgja með eina mynd af bumbunni... komin 34 vikur + 2 daga þarna 8|

click to view full size

 Later

- Konný OG BUMBAN :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 00:13:08 / konný

Þetta....

 

.... er það sem er efst í mínum huga þessa dagana !!! aarrrggg langar svo til þess að liggja á strönd einhverstaðar lengst í burtu og hafa það kósý í a.m.k viku eða svo ;) Ef ekki væri hægt að koma sólarlandaferð til leiða þá væri ég alltaf til í Köben eða eitthvað :$ ÖLL FJÁRFRAMLÖG VEL ÞEGIN :) hahaha

hmmm... annars er nú eitthvað lítið að frétta bara :$ Er nú bara hress og svona miðað við líkamlegt ástand :o en er samt aðeins farin að þreytast :!: Bara 9 vikur eftir :haha: sem btw minnir mig á það að stöð 2 sagði frá því um daginn að meðganga hjá hundi (tík) væri bara 9 vikur............ BÖLVI ÞEIM :evil: en æææ þetta styttist og styttist og er nú í rauninni ekkert búið að vera svo lengi að líða (hélt að þetta yrði alveg milljónum sinnum lengur að líða) þannig að ég get nú bara ekki annað en verið nokkuð sátt ;)

Er enn að vinna hálfan daginn uppí Odda og kem líklega til með að gera það meðan ég treysti mér til... Verð ábyggilega eitthvað fram í mars að minnsta kosti en ætla svo að taka mér allavega 2-3 vikur fyrir fæðingardag og SLAPPA AF :!: held ég hafi alveg gott af því ;) 

Jæja er farin að leggja mig bara...... klukkan að verða hálf 1 á laugardagskvöldi og sko LÖNGU komið fram yfir minn háttatíma ;) hehehe

GÓÐA NÓTT

-Konný

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 22:13:22 / konný

Þú varst 90´s krakki EF......

-Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

-Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

-Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

-Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

-Þegar lögga og bófi, skotbolti, yfir og eina króna var daglegt brauð

-Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu til að geta tekið það upp á kasettutækið..

-Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

-Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

-Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

-Þú horfðir á HeMan, Regnboga Birtu, Kærleiksbirnina, Turtles og My little Pony..

-Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

-Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

-Þú eyddir meiripartinum af skóladeginum í að búa til gogga og skrifa inní þá...

-Þú áttir tölvugæludýr

-Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

-Þú safnaðir lukkutröllum

-Og áttir vasadiskó

-Þú kannt Macarena dansinn utanað  

-Enginn vissi hvað sms var..

-Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið og Teygju-gorma reima æðið gekk yfir

-Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

-Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

-Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

-Það var kúl að vera í Kraft-galla,

 -Allar stelpur áttu/söfnuðu plast snudduhálsmenum

 -Pox æðið var í algleymingi

 -Dickies buxur, Buffalo skór, Smash peysur og smellubuxur voru INN

 -Manni langaði ekkert frekar en að vera í Rokklingunum og maður söng hástöfum með The Boys…

 

Hahahahaha Good old times………. ÞVÍLÍK NOSTALGÍA :haha:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 19:04:07 / konný

3d sónar...

... er gjörsamlega mesta snilld sem til er :D Þetta var algjört ÆÐI.... að sjá litlu krúttbolluna í svona sónar gerði þetta allt mikið mikið raunverulegra :haha: Mæli sko algjörlega með þessu fyrir verðandi mæður. Prinsessan var alveg á milljón allan tímann, baðandi út höndum og fótum og sparkandi eins og hún fengi borgað fyrir það ;) hehehe það var voða skrítin tilfinning að finna spörkin og sjá hana um leið sparkandi á skjánum :lol: Hún var nú orðin eitthvað pirruð á naflastrengnum sem var alltaf að þvælast fyrir andlitinu á henni og hún var alltaf að reyna að ýta honum í burtu :P híhí. Það var líka voða gott að fá 100% staðfestingu á að um dömu er að ræða og því getur maður haldið áfram að kaupa bleikt með góðri samvisku ;) hehehe...

En já... var fyrir norðan um helgina í ljúfri afslöppun og góðu yfirlæti hjá henni Telmu minni :haha: alveg yndislegt að komast svona aðeins í burtu :!::!: Lágum mest alla helgina í leti en fórum þó í smá búðarráp, keyrðum inná Dalvík í mat til Lilju og Óskars, fórum út að borða á Greifann og margt fleira skemmtilegt :)

En æi nenni varla að blogga meira núna en ætla að láta tvær myndir úr 3d sónarnum í dag fylgja með ;) Vona að þið hafið gaman að :D heheh

click to view full size

Snúllz með opinn munninn :D

click to view full size

Sætasta prinsessan (með naflastrenginn upp við andlitið)

kv. Konný og beauty bollan :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 14:19:08 / konný

Halló Akureyri...

... jamm, ætla að skella mér norður í fyrramálið ;) Ætla að heimsækja Telmu og þau, slappa af, borða mikið (eating for two, remember :haha:) og koma svo heim aftur á sunnudagskvöldinu.......... úfff get ekki beðið eftir að komast burt úr Reykjavíkinni í smá stund :!:

Er byrjuð að vinna í bókhaldinu í prentsmiðjunni Odda hálfan daginn og finnst það bara alveg meiriháttar gaman enda allt konur sem ég þekki og svona... svo er líka fínt að hafa múttu á staðnum ef eitthvað bjátar á :D Hugsa að ég muni koma til með að vinna hérna a.m.k. í nokkrar vikur í viðbót en þar sem ég kem bara inn sem aukamanneskja þá verð ég bara hér á meðan eitthvað er fyrir mig að gera :o vonum bara að það verði eitthvað lengur :!::!::!:

Er svo að fara í 3d sónar á mánudaginn og mig hlakkar ekkert smá mikið til. Fyrir þá sem ekki vita þá er 3d sónar mikið skýrari en venjulegur sónar þar sem hann er þrívíddar auk þess sem hægt er að sjá allt barnið í honum en ekki bara einhver svört strik hér og þar sem maður skilur voða lítið í :| Svo fær maður líka fullt af myndum og videobrotum með sér heim á disk :haha:

En hmmm.... ætli það sé ekki best að halda áfram að vinna. Ætla að taka mér langan vinnudag í dag þar sem ég verð í fríi á morgun og hinn ;)

Later

-Konný


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 18:32:42 / konný

hellúú darlings...

... svo sem ekkert nýtt að frétta (like usually) vááá á ég mér ekkert líf eða !!!!

Átti reyndar afmæli þann 11 janúar og náði þeim merka áfanga að verða 25 ára ;) Afmælisdagurinn var nú bara tekinn í ró og næði enda svo sem ekki við öðru að búast þessa dagana :$. Byrjaði svo á föstudaginn að vinna í bókhaldinu uppí Odda (í 4 klst á dag) sem er bara mjög fínt og verð ég að vinna þar í nokkrar vikur (alveg óákveðið). Ég er bara mjög sátt með það þar sem ég var farin að búa mig undir það að mygla all svakalega hérna heima við að gera ekki neitt...... 8|

Náði öllum prófunum á Bifröst nema helv... Rekstrarhagfræðinni :whut: og þarf ég þar af leiðandi að sitja áfangann aftur einhverntíma seinna = ógeð :evil: en það þíðir víst lítið að æsa sig yfir því og ég ætla bara að sjá til hvað ég geri næsta haust, hvort ég fari aftur uppeftir eða hvort ég fari bara í HÍ eða eitthvað... Nenni að minnsta kosti ekki að pæla mikið í því núna en ég er allavega með allt opið ef ég vil fara aftur uppá Bifröst (er semsagt bara skráð í námspásu) :!:

School

Ætla að skella mér með Margréti, Gullý og Ásu á Vegamót á eftir að fá okkur eitthvað gott að borða... Ætli ég verði svo ekki bara komin heim um 23 leitið og farin að sofa fyrir miðnætti eins og venjulega þessa dagana, híhíhí :D JÁ ÉG VEIT... ÉG ER SORGLEG...

kveð í bili

-Konný


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 17:13:24 / konný

*2007*

Nýtt ár gengið í garð og enn eitt árið liðið... Alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða 8| Árið 2007 verður án efa afar viðburðarríkt og jafnframt skemmtilega öðruvísi en síðustu ár :D Óska ykkur öllum farsældar á nýju ári :haha:

GLEÐILEGT NÝTT ÁR ELSKURNAR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 13:16:00 / konný

KOMIN Í JÓLAFRÍ...

... jeiiii, það er ekkert smá gott að vera komin HEIM loksins........... :D Get ekki lýst því með orðum einu sinni. Ég er samt ekki að segja að það hafi verið eitthvað hræðilegt þarna á Bifröst en ææ það er bara alltaf svo gott að vera heima ;)

Nú getur maður farið að stússast í hinu og þessu, farið að kaupa jólagjafir, skreyta og jafnvel skrifa einhver jólakort (ætla að sjá til hvort ég nenni því)... Mér finnst eins og það séu a.m.k. 2-3 vikur til jóla en neiii BARA VIKA þannig að það er nóg að gera :S

Er að fara í afmæli til Emilíu (dóttir hans Danna bróðir). Hún er 2 ára í dag skvísan. Hún og Viktoría voru hérna heima um daginn og mamma var að reyna að taka mynd af þeim saman og ég ætla að láta fylgja með 2 ógó sætar myndir af þeim :haha:

click to view full size 

click to view full size 

svo miklar rúsínur :haha:

En já hef svo sem ekkert merkilegt að segja þannig að ég kveð að sinni.... en já, ég er komin í jólafrí eins og ég sagði áðan þannig að HVER VILL VERA MEMM í vikunni og koma í búðarráp ;)

love you

Konný


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 15:21:17 / konný

Próf....

..... Ekki það að ég sé alltaf bloggandi hérna en þá vil ég bara láta ykkur ÆSTU AÐDÁENDUR mína vita að ég mun ekki koma til með að blogga neitt að ráði fyrr en eftir próf  =  24 nóvember ;)

Próftaflan er sem hér segir :

Mánudagur 20.nóvember (Rekstrarhagfræði),  Þriðjudagur 21.nóvember (Starfsmannastjórnun),  Miðvikudagur 22.nóvember (Arðsemisgreining),  Fimmtudagur 23.nóvember (Markaðsfræði - munnlegt próf) :S

Get nú ekki sagt að mig hlakki beinlínis til ;) hehehe en váá hvað það verður gott þegar þau eru búin...... reyndar tekur ekkert betra við þá = misserisverkefni sem er risastórt verkefni unnið í hópum í 2 vikur í samvinnu við fyrirtæki og síðan flutt í málsvörn fyrir framan kennara og nemendur sem reyna allt til að klekkja á manni með spurningum og svoleiðis þannig að maður þarf sko að þekkja verkefnið inn og út :!:

jámm mikið að gera á næstunni en örvæntið eigi því ég verð komin í jólafrí 15.des :haha: jeiii

over & out héðan af Bifröst (drama samfélaginu mikla miðað við fréttir síðustu daga) hehehe


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
The BIG day !!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1739 dögum
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 febrúar