... er gjörsamlega mesta snilld sem til er Þetta var algjört ÆÐI.... að sjá litlu krúttbolluna í svona sónar gerði þetta allt mikið mikið raunverulegra Mæli sko algjörlega með þessu fyrir verðandi mæður. Prinsessan var alveg á milljón allan tímann, baðandi út höndum og fótum og sparkandi eins og hún fengi borgað fyrir það hehehe það var voða skrítin tilfinning að finna spörkin og sjá hana um leið sparkandi á skjánum Hún var nú orðin eitthvað pirruð á naflastrengnum sem var alltaf að þvælast fyrir andlitinu á henni og hún var alltaf að reyna að ýta honum í burtu híhí. Það var líka voða gott að fá 100% staðfestingu á að um dömu er að ræða og því getur maður haldið áfram að kaupa bleikt með góðri samvisku hehehe...
En já... var fyrir norðan um helgina í ljúfri afslöppun og góðu yfirlæti hjá henni Telmu minni alveg yndislegt að komast svona aðeins í burtu Lágum mest alla helgina í leti en fórum þó í smá búðarráp, keyrðum inná Dalvík í mat til Lilju og Óskars, fórum út að borða á Greifann og margt fleira skemmtilegt
En æi nenni varla að blogga meira núna en ætla að láta tvær myndir úr 3d sónarnum í dag fylgja með Vona að þið hafið gaman að heheh
Snúllz með opinn munninn
Sætasta prinsessan (með naflastrenginn upp við andlitið)
kv. Konný og beauty bollan
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.