Skellti mér í afmæli til hennar Guðrúnar vinkonu á
föstudagskvöldinu. Kellan varð 24ára og bauð uppá allskonar
gúmmelaði
t.d. lasagne, súkkulaðiköku og nóg af blushi
Við
spjölluðum, horfðum á idolið og kíktum svo í bæinn eftir
miðnætti... Fórum á Óliver, Vegamót og Kofann og eftir það fórum,
ég, agnes og margrét, keyptum okkur að borða og svo rölti ég heim
(til elvu) í rólegheitunum.
Set kannski inn nokkrar myndir frá kvöldinu þegar ég er búin að
koma þeim inná tölvuna... 
Á laugardeginum var ég svo frekar þunn, leið hálf skringilega en
ákvað samt sem áður að skreppa með Ásu á American Style. Kíktum svo
á lagersöluna hjá Senu og svo fór ég uppí Perlu á útsölumarkaðinn
þar (btw algert drasl). Þegar ég kom heim skellti ég mér í
útigallann og fékk mér göngutúr í góða veðrinu. Rölti um í
kirkjugarðinum við suðurgötu og vááá hvað eru gömul leiði þarna. Í
elsta partinum er fólk grafið árið 1860 eða eitthvað álíka og það
er sko ekkert skipulag á leiðunum þarna, allt út um allt bara.
Þegar ég kom svo heim fór ég beint til Gullýjar vinkonu til að
krulla á henni hárið því hún var að fara á árshátíð í Perlunni
og hún var ekkert smá fín eftir það (krullið)...
Fór svo heim og lá í leti, enn hálf slöpp eitthvað enda fór
sunnudagurinn fyrir lítið þar sem að ég og klósettskálinn vorum sem
eitt
Gubbupest af verri gerðinni !!! Var svo bara heima á
mánudeginum frekar slöpp og er það reyndar pínu
ennþá 
Ætla svo að fara með vinnunni út að borða á föstudaginn á
Sjávarkjallarann
nammm get varla beðið !!!
-stay tuned
p.s. fyrir þá sem eru að telja, hehehe
þá eru
nákvæmlega 67 dagar þangað til ég fer í sólina... úfff bara alveg á
næsta leiti !!