Jahááá...... þetta var bara ein skemmtilegasta helgi sem ég hef
upplifað skal ég segja ykkur 
Skellti mér á árgangsmót 1982 árgangsins úti í Eyjum og sé sko
ekki eftir því, hehehe. Fór með herjólfi á föstudeginum og var mætt
útí Eyjar klukkan 15. Skellti mér uppá þetta líka fína hótel
herbergi (Hótel Eyjar) með dótið og var svo sótt af Hrafnhildi og
Birnu klukkan 17.... eða öllu heldur Elvari bróðir Hrafnhildar sem
btw náði á þessari stuttu vegalengd, milli heimilis þeirra og
hótelisins, að vera tekin af löggunni og Hrafnhildur bað lögguna
vinsamlegast um að vera nú fljóta því þau væru að drífa
sig
hahahahaha alger snilld !! En já, við fórum í partý til
hennar Kollu og það var alveg meiriháttar gaman. þaðan lá leiðin
beinustu leið upp í Alþýðuhús þar sem var borðað, drukkið, drukkið
meira og dansað fram eftir nóttu
. Á endanum var svo partý á
herberginu hjá mér eða öllu heldur svölunum og mundi ég nú ekki
alveg eftir því daginn eftir að það hefðu verið svona margir þar

BTW... ER BÚIN AÐ SETJA INN MYNDIR FRÁ EYJUM HÉR
TIL VINSTRI... (undir linknum
-myndir-)

Á laugardeginum var risið úr rekkju uppúr hádegi og þar sem mín
var nú svolítið ryðguð ákvað ég að skella mér bara á café maría að
fá mér eitthvað að borða. Þegar þangað var komið hitti ég alveg
helling af liði úr árganginum og allir að fá sér í glas
auðvitað.......ég meina það var nú einu sinni komið fram yfir
hádegi
hehehe...... Ég fékk mér auðvitað líka og svo var haldið
niðrá bryggju þar sem óvissuferð dagsins átti að hefjast. Við
röltum uppí Féló þar sem hlustað var á 2unlimited, prodigy og
fleiri gamla og góða og auðvitað farið í hvísluleik
síðan fórum
við með rútu uppí hraun, niðrí dal og á fleiri góða staði. Auðvitað
var okkur svo gefin staup inná milli til að halda í okkur stuðinu
heheh. Um kvöldið fór ég svo til Hrafnhildar þar sem við gerðum
okkur klárar fyrir grímubúninga þemað sem var í vændum. Fórum svo
uppá flugvöll og þaðan niðrí Dalabú þar sem var grillað, sungið og
drukkið óhóflegt magn af áfengi...........úffffff ég held ég hefði
átt að sleppa síðustu sopunum þar sem ég hef bara aldrei á ævinni
orðið eins drukkin............ endaði með því að ég hrapaði með
tilþrifum fram af einu borðinu þar sem ég stóð og var að syngja í
brjáluðu stuði 
og bíðið enn því ég datt ekki bara einu sinnu
um kvöldið heldur tvisvar með þeim afleiðingum að ég fékk RISA kúlu
á hausinn, brákað nef, brákað viðbein og einn ALSTÆRSTA marblett
sögunnar á lærið
reyndar var mér slétt sama þegar ég stóð upp og
fann varla fyrir neinu, skellti mér meira að segja á pöbbinn og var
þar til klukkan 4 eða 5.........................
Daginn eftir vaknaði ég svo og gat varla hreyft mig fyrir bæði
áverkum á líkama og ÞYNNKU !!!!!!!!!!!!!!! vááááá hvað ég var þunn
og Herjólfur var ekki til að bæta úr. Díses, þurfti meira að segja
að fá Nönnu til að keyra bílinn minn úr Þorlákshöfn því ég meikaði
það ekki sjálf,
hehehehe
Vil einnig benda ykkur á að lesa færslu skemmtanalöggunar a.k.a
Lilja sem hún skrifar á heimasíðu ´82 árgangsins http://www.eyjar1982.tk
ALGER SNILLD
og segir frá helginni á ótrúlega skemmtilegan hátt.... auk þess eru
fleiri myndir að finna hér
http://community.webshots.com/user/eyjar1982 og
líka hér http://hjalti82.myphotoalbum.com/albums.php
En dömur mínar og herrar... þetta er fyrsti þynnkulausi dagurinn
síðan síðustu helgi og ég ákvað að fagna honum með þeirri ákvörðun
að skella mér á Humarhátíð á Höfn næstu helgi með nokkrum úr
vinnunni....... ég er ekki eðlileg 
LATER FOLKS