LIGHT TRAVELS FASTER THAN SOUND... THIS IS WHY SOME PEOPLE APPEAR BRIGHT UNTIL YOU HEAR THEM SPEAK.

29.01.2007 19:04:07 / konný

3d sónar...

... er gjörsamlega mesta snilld sem til er :D Þetta var algjört ÆÐI.... að sjá litlu krúttbolluna í svona sónar gerði þetta allt mikið mikið raunverulegra :haha: Mæli sko algjörlega með þessu fyrir verðandi mæður. Prinsessan var alveg á milljón allan tímann, baðandi út höndum og fótum og sparkandi eins og hún fengi borgað fyrir það ;) hehehe það var voða skrítin tilfinning að finna spörkin og sjá hana um leið sparkandi á skjánum :lol: Hún var nú orðin eitthvað pirruð á naflastrengnum sem var alltaf að þvælast fyrir andlitinu á henni og hún var alltaf að reyna að ýta honum í burtu :P híhí. Það var líka voða gott að fá 100% staðfestingu á að um dömu er að ræða og því getur maður haldið áfram að kaupa bleikt með góðri samvisku ;) hehehe...

En já... var fyrir norðan um helgina í ljúfri afslöppun og góðu yfirlæti hjá henni Telmu minni :haha: alveg yndislegt að komast svona aðeins í burtu :!::!: Lágum mest alla helgina í leti en fórum þó í smá búðarráp, keyrðum inná Dalvík í mat til Lilju og Óskars, fórum út að borða á Greifann og margt fleira skemmtilegt :)

En æi nenni varla að blogga meira núna en ætla að láta tvær myndir úr 3d sónarnum í dag fylgja með ;) Vona að þið hafið gaman að :D heheh

click to view full size

Snúllz með opinn munninn :D

click to view full size

Sætasta prinsessan (með naflastrenginn upp við andlitið)

kv. Konný og beauty bollan :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 14:19:08 / konný

Halló Akureyri...

... jamm, ætla að skella mér norður í fyrramálið ;) Ætla að heimsækja Telmu og þau, slappa af, borða mikið (eating for two, remember :haha:) og koma svo heim aftur á sunnudagskvöldinu.......... úfff get ekki beðið eftir að komast burt úr Reykjavíkinni í smá stund :!:

Er byrjuð að vinna í bókhaldinu í prentsmiðjunni Odda hálfan daginn og finnst það bara alveg meiriháttar gaman enda allt konur sem ég þekki og svona... svo er líka fínt að hafa múttu á staðnum ef eitthvað bjátar á :D Hugsa að ég muni koma til með að vinna hérna a.m.k. í nokkrar vikur í viðbót en þar sem ég kem bara inn sem aukamanneskja þá verð ég bara hér á meðan eitthvað er fyrir mig að gera :o vonum bara að það verði eitthvað lengur :!::!::!:

Er svo að fara í 3d sónar á mánudaginn og mig hlakkar ekkert smá mikið til. Fyrir þá sem ekki vita þá er 3d sónar mikið skýrari en venjulegur sónar þar sem hann er þrívíddar auk þess sem hægt er að sjá allt barnið í honum en ekki bara einhver svört strik hér og þar sem maður skilur voða lítið í :| Svo fær maður líka fullt af myndum og videobrotum með sér heim á disk :haha:

En hmmm.... ætli það sé ekki best að halda áfram að vinna. Ætla að taka mér langan vinnudag í dag þar sem ég verð í fríi á morgun og hinn ;)

Later

-Konný


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 18:32:42 / konný

hellúú darlings...

... svo sem ekkert nýtt að frétta (like usually) vááá á ég mér ekkert líf eða !!!!

Átti reyndar afmæli þann 11 janúar og náði þeim merka áfanga að verða 25 ára ;) Afmælisdagurinn var nú bara tekinn í ró og næði enda svo sem ekki við öðru að búast þessa dagana :$. Byrjaði svo á föstudaginn að vinna í bókhaldinu uppí Odda (í 4 klst á dag) sem er bara mjög fínt og verð ég að vinna þar í nokkrar vikur (alveg óákveðið). Ég er bara mjög sátt með það þar sem ég var farin að búa mig undir það að mygla all svakalega hérna heima við að gera ekki neitt...... 8|

Náði öllum prófunum á Bifröst nema helv... Rekstrarhagfræðinni :whut: og þarf ég þar af leiðandi að sitja áfangann aftur einhverntíma seinna = ógeð :evil: en það þíðir víst lítið að æsa sig yfir því og ég ætla bara að sjá til hvað ég geri næsta haust, hvort ég fari aftur uppeftir eða hvort ég fari bara í HÍ eða eitthvað... Nenni að minnsta kosti ekki að pæla mikið í því núna en ég er allavega með allt opið ef ég vil fara aftur uppá Bifröst (er semsagt bara skráð í námspásu) :!:

School

Ætla að skella mér með Margréti, Gullý og Ásu á Vegamót á eftir að fá okkur eitthvað gott að borða... Ætli ég verði svo ekki bara komin heim um 23 leitið og farin að sofa fyrir miðnætti eins og venjulega þessa dagana, híhíhí :D JÁ ÉG VEIT... ÉG ER SORGLEG...

kveð í bili

-Konný


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 17:13:24 / konný

*2007*

Nýtt ár gengið í garð og enn eitt árið liðið... Alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða 8| Árið 2007 verður án efa afar viðburðarríkt og jafnframt skemmtilega öðruvísi en síðustu ár :D Óska ykkur öllum farsældar á nýju ári :haha:

GLEÐILEGT NÝTT ÁR ELSKURNAR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA


» 4 hafa sagt sína skoðun


The BIG day !!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1053 dögum
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 febrúar