Úff vá hvað ég er ekki að nenna þessu bloggi lengur..... veit ekki einu sinni hvort að það sé einhver að skoða þetta lengur þar sem svo virðist sem það sé einhver gúrkutíð í commentum síðustu færslna !!!!
hmmm.....
En allavega ágætt að frétta bara og svoleiðis. Erum búnar að vera fyrir norðan mæðgurnar núna í 2 vikur og vorum bara að koma í bæinn aftur í gær !!!! Rakel er alltaf jafn yndisleg og góð. Orðin 4 mánaða ---- VILJIÐI PÆLA---- vá hvað þetta er fljótt að líða
Einhver smá pirringur í henni þessa dagana og hún læsir gómnum í ALLT sem hún nær í greyið, hehe
Ætli hún fái tönnslur snemma eins og mamma sín 
Æ nenni ekki að skrifa meir.... ætla að reyna að henda mér í sturtu á meðan skvís sefur aðeins....
kannski Later 
Konný